miðvikudagur, september 26, 2007

Kaffi kaffi kaffi kaffi

Loksins er komin á heimilið alvöru kaffivél!!! Þannig no more nescafé, hamingjan! Verst að sambýlingar mínir drekka ekki kaffi. IIIIIts aaaaalll miiiiine! Múhahahahaha

Við Hlín fórum á ferðahátíð á vegum Kilroy í gær. Úff púff mig langar í heimsreisu núna. Fengum að vita hvar við gætum lært að surfa í Ástralíu, hvar við gætum lært að kafa á Fiji, hvað er vert að sjá á Nýja Sjálandi og hvernig er best að ferðast milli staðanna og hvar maður á að gista. Núna þarf ég bara að vinna í lóttó!

Hugmyndin mín þessa stundina er að taka öll tips sem ég fæ og setja til hliðar í ferðasjóð. Sjáum til hvernig það gengur. Annars er ég hætt að reykja nema ég sé að fá mér í glas (og verð ofurpirruð í vinnunni). Sparnaður þar! Erum orðnar þrjár um leiguna og heimilisreksturinn, heilmikill sparnaður þar. Hætt að fara eins oft að fá mér bjór, mega sparnaður þar. Búin að fækka kaffihúsaferðunum, fullt af krónum þar. Tók reyndar smá flipp á Hm.com og pantaði nokkrar flíkur en hey ég á það skilið.

sunnudagur, september 23, 2007

Húsmóðirin mikla

Það er sunnudagur og auðvitað að góðra húsmæðra sið bakaði ég sunnudagskaffi. Hér á boðstólum klukkan 15.00 voru nýbakaðar múffur og lummur. Við sambýlingarnir plús Gyða hámuðum í okkur bakkelsið og hér verður líklega bara afslappelsi fram á kvöld. Spurning hvort maður vippi upp einhverjum dinner.

Nú er ég komin í tveggja daga frí og verð ég að segja það er veeeelþegið. Vikan er búin að vera klikkuð og við vorum með meira en fullt hús á hverjum einasta degi. Þreytan er alveg til staðar og ágætt að eiga tvo daga með engri frönsku. Mér finnst í augnablikinu eins og ég geti ekki talað eitt einasta tungumál rétt. Öllu heldur eins og mér fari aftur í frönskunni og dönskunni og enskan mín er ekkert til að hrópa húrra yfir. Íslenskan er samt mest fyndin af öllu einhverskonar blanda af dönsku, íslensku og ensku með fáranlegri orðaröð.

miðvikudagur, september 19, 2007

Myndir

Jæja framtakssemin að fara með mig.... nýjar myndir komnar á netið. Mamma hringdi spes í mig að ýta á eftir myndum af íbúðinni. Voilá!

Ég tók smá beautymeðferð á sjálfri mér í dag... hárlitur, naglalakk, maski og dúllerí. Nema hvað hárliturinn kom nú ekki út eins og ég hafði hugsað mér. Mér finnst ég líta svolítið út eins og zebrahestur. Þannig nú er spurning að kíkja á Zenso og gá hvort gellurnar þar geti bjargað mér. Oft tefur flýtinn eins og er sagt. Ég gerði þetta sjálf til að spara tíma. Eru skuplur ekki annars í tísku???

Má ég henda símanum mínum út um gluggann af hæstu byggingu heims? Ég er komin með ógeð á hvað hann hringir mikið... mest náttúrulega út af veitingahúsinu. Hvernig í fjáranum dettur fólki í hug að hringja í veitingastað fyrir klukkan átta á morgnanna? Og þá sérstaklega þegar veitingastaðurinn opnar ekki fyrr en kl. 17.30??? Jæja best að drífa sig í vinnuna.

mánudagur, september 17, 2007

Edlilegt?

Er edlilegt ad ég tárist thegar thad er verid ad skera lauk inni í eldhúsi á veitingastadnum?

Er edlilegt ad reka hausinn í 5 sinnum sama daginn?

Er edlilegt ad gleyma thremur kaffibollum sama daginn?

Er edlilegt ad fara 4 sinnum inn í eldhús en gleyma í hvert sinn hvad madur ætladi ad ná í?

Ég held ég sé smá utan vid mig í dag.

En ég ætla ad taka myndir af íbúdinni og setja svo inn á síduna svo allir geta séd hvernig ég bý... adallega samt mamma og pabbi ehehehehe.

Hejsa

Nú erum við orðnar þrjár sem búum hérna á Rudolph Berghs Gade og allir hlutir að komast á sína staði. Herbergið mitt er nú klárt en það hefur tekið aðeins lengri tíma en ætlað var, þannig nú er ég farin að sofa í rúmi en ekki á sófanum þökk sé Ester. En hún var að flytja og ég fékk að njóta góðs af því með að erfa nokkur húsgögn.

Reyndar held ég að ég sé með major ofnæmi fyrir einhverju hérna heima hjá mér...

Það er búið að vera brjálað að gera í vinnunni að undanförnu og lítur út fyrir að það verði það áfram.

sunnudagur, september 02, 2007

Bladdíbla

Langt síðan ég hef tjáð mig hér...
Stiklum á stóru....

Sellan er flutt inn.
Elín flutt til Íslands.
Davíð og Ellen komin til DK.
Davíð og Ellen farin til Íslands.
Ég alltaf að vinna.
Ein sem er kölluð Tóta er líklega að flytja hér inn næstu helgi.
Leiðinlegt veður í DK, það er komið haust.
Búin að vera að farast úr ofnæmi, er að vinna að heimsmeti í hnerri.
Fjörfiskur er sjúkt fyndinn eftir á, kúnnar halda maður sé að blikka þá í sífellu.
Hristimyndir eru mjöööög fyndnar.
Ég vil fara til útlanda, NÚNA!
Það klárlega vantar fleiri ljós í íbúðina mína.
Mulningsvél!

fimmtudagur, ágúst 16, 2007

achlooo

Ég er eirdarlaus í meira lagi thessa dagana. Er ad farast núna í vinnunni thar sem thad er mjøg rólegt kvøld og ekki nóg fyrir mig til ad halda mér upptekni. Í gær var eirdarleysin svo mikil ad ég labbadi nokkur hverfi á enda og tilbaka... í rigningu... í skóm med gati á botninum. Ótrúlegt hvad manni dettur í hug ad gera á tídum.

Sellan mín kemur á morgun veiiii!

fimmtudagur, ágúst 09, 2007

Ég er svoooo veik

Ég er haldin ferdaveiki á mjøg háu stigi thessa dagana. Ég finn líkamlega ekki sídur andlega thørf fyrir ad fara ad skoda heiminn. Eina sem ég sé thessa dagana eru auglysingar fyrir ferdum ut um allann heim.... einnig finnst mér eins og allir séu ad fara eitthvad nema ég. Nyjasta hugmyndin mín er sú ad setja bara allt á hold í nokkra mánudi og ferdast... thá hlýt ég ad losna vid thessa ógedslegu bakteríu. Langar thá helst ad fara til Ástralíu, Nýja Sjálands og Asíu. Er ég galin? Á ég frekar bara vera skynsøm og vinna eins og vitleysingur og fullordnast? Einhvern veginn hef ég ekki hugmynd í hvorn fótinn ég á ad stíga.

fimmtudagur, ágúst 02, 2007

Búhúhú

Nú er fríid góda búid, hefdi ekki haft neitt á móti thví ad vera adeins lengur ad hangsa. Íslandsferdin var alveg geggjud og frábært ad slaka á og hitta lidid. Ég er reyndar alveg farin ad thrá ad sjá smá sól og ansnadist til ad lesa bladid í dag og thar var audvitad fullt fullt af ódýrum ferdum... spurning um ad fara bara og finna einhvern til ad leysa sig af í vinnunni. Ég meina halloooo 2000 kall danskar fyrir viku á Tyrklandi all included og ég meina ALLT!... thad er ekki neitt neitt. Ér ekki annars alltaf sól og hiti á Tyrklandi? Annars kostadi thad um 300 kalli meira ad fara til Bulgariu... Oh nú er ég bara ad pína sjálfa mig. Ég fer brádum ad breytast í fisk ef thad rignir meira.

Einhver ad koma og gefa mér sól!

föstudagur, júlí 20, 2007

Oh weather where art thou?

Hvernig stendur á því að um leið og ég fer frá Danmörku kemur sól og blíða og um leið og ég lendi á Íslandi þá fer að rigna í fyrsta skipti í rúman mánuð? Ég get svarið fyrir að það hvíla álög á mér!

Annars er alveg hreint yndislegt og hálft hér á Íslandi.

mánudagur, júlí 16, 2007

Draumar

Mig hefur dreymt nú margt skrítið í gegnum tíðina en draumar undanfarna daga eru nú frekar furðulegir. Í fyrri nótt dreymdi mig ég hefði gengið í Vísindakirkjuna hér í Danmörku. Þegar ég var komin þangað inn var ég klædd í bláa ljóta skyrtu og beige khaki buxur... einstakur hátískuklæðnaður. Einnig mátti ég bara tjá mig á ensku það var þannig að þeir sem hæstréðu gætu skilið okkur mauranna. Já svo var mér tjáð að lesa bækur Ron Hubbard eða hvað hann nú heitir og einnig að horfa á Star Wars myndirnar og auðvitað varð ég að hætta að tala við fjölskyldu og vini sem ekki tilheyrðu þessum safnaði. Það fáranlegasta var ég var furðusátt við þetta allt saman. Rugldraumur...

Eftir þennan draum fór ég að spá af hverju er ekki kirkja sem heitir Fellowship of the ring, The temple of Bridget Jones eða eitthvað álíka fáranlegt?

Ísland eftir nokkra daga! Vúhú!

laugardagur, júlí 14, 2007

Fríííí

Nú eru einungis nokkrir tímar í það að ég taki mér lengsta sumarfrí ever. Auðvitað eins og mér er lagið náði ég mér í eitt viðbjóðslegasta kvef sem ég hef fengið og að sjálfsögðu byrjaði það í dag. Náði að dópa mig upp til að vinna þessa örfáu tíma sem ég á eftir fyrir fríið. Ég vona bara svo innilega að ég eigi ekki eftir að hnerra ofan í mat gestanna. Einnig vona ég að þetta ógeð verður farið áður en ég mæti á klakann.

Á morgun er það svo Sverige í afslöppun og mat til Hildar.

mánudagur, júlí 02, 2007

Ísland...

Ég er sem sagt að fara í sumarfrí og var að gæla við þá hugmynd að fara eitthvað út í heim. Var eiginlega búin að ákveða að skreppa annaðhvort til Aarons og fl í London eða til Hrefnu Líneikar í Þýskalandi nema hvað foreldrum mínum fannst það ekkert sniðugt og ákváðu frekar að bjóða mér til Íslands. Þannig ég verð á fróninu farsælda 18. júli til 26. júlí í afslöppun og dekri hjá mömmu og pabba.

mánudagur, júní 25, 2007

Róleg helgi

Þá er ósköp rólegri helgi lokið. Mesta sem var gert var að bjóða Hildi, Hlín og Þránni í mat í gærkveldi. Grilluðum hammara og svo var ostakaka a la Hrebbna í eftirrétt. Fólk borðaði á sig gat og þegar þau héldu þau gætu ekki borðað meira píndi ég meira ofan í þau.... hehehehe. Enduðum svo kvöldið með að glápa á Dogma. Alveg sama hversu oft ég hef séð þessa mynd þá er hún alltaf jafn skemmtileg.

Ég skilaði af mér íbúðinni á kollegíinu áðan og á því bara heima á einum stað núna. Fínt að þurfa ekki að hugsa um þá íbúð meir. Nú þarf ég bara að fara að koma mér í IKEA að kaupa ýmislegt fyrir þessa íbúð. Einna mikilvægast er fataslá eða fataskápar.

Svo verða það bara rólegheit það sem eftir lifir dags.

föstudagur, júní 22, 2007

hahahaha

Þvottavélin loks komin í hús en auðvitað eru einhver vandkvæði eins og er sjálfsagt þegar ég á í hlut! Nebblilega það er eitthvað ves að fá vatn inn á vélina. Þannig eigandinn er búinn að koma 2 að reyna að laga og er nú að reyna að bardúsa eitthvað. Vona bara svo innilega að þetta virki. Ég nenni ómögulega að þvo þvottinn minn í höndum eins og ég hef verið að gera að undanförnu.

Hér rignir óendanlega og ég er búin að lenda í nokkrum dembum án regnhlífar eða nokkurs konar vara. Í augnablikinu eru þrenn pör af skóm og 2 jakkar í þurrkun. Ég ætti kannski að finna regnhlífina mína og hafa hana með mér hvert sem ég fer.

Í svona veðri þá verður maður eitthvað svo ofur þreyttur og fær égnenniiggiveikina á háu stigi.

Annars erum við Elín búnar að vera að hengja upp myndir og gera sætt hérna. En þrátt fyrir það er enn frekar langt í land.

þriðjudagur, júní 19, 2007

þvottur...

Mér ætlar ekki að takast að fá þvottavél í hús! Málið er ég ætla bara að leigja þvottavél því ég veit ekkert hvað ég kem til með að búa í Danaveldi lengi og ef ég fjárfesti í slíkum grip þá vil ég kaupa gæðagrip sem endist eitthvað og einnig táknar slíkur gripur að ég er orðin aðeins fullorðnari en ég er tilbúin til að sætta mig við.
En að vandræðunum, þetta fyrirtæki nefnist LEASY og ég finn þar fína þvottavél á ágætu verði og reyni svo að panta hana á netinu. Neibb gat það ekki. Hringi og reyni að panta, fæ þau svör að einhver muni hringja í mig innan tíu mínútna. Eftir klukkutíma hringi ég aftur og fæ enn sömu svör og áður. Ég náttúrulega orðin smá pirruð. Ég hringi svo aftur og næ loks sambandi við einhvern og næ að panta gripinn. Hann segir mér að ég geti fengið hann afhentan eftir tæpa viku, whaaaat? Ég hélt þetta ætti bara að taka 2 daga! Ó well!
Á settum degi bíð ég spennt eftir að fá að fara loksins þvo föt, hóst hóst! En aldrei kemur neinn en ég fór í sturtu og hringi svo í þá og þá segja þeir að enginn hafi svarað. Ég náttúrulega miður mín. Kemst reyndar að því að þeir fóru í vitlaust hús!
Næsti afhendingardagur er fimm dögum eftir fyrstu tilraun, ég vakna snemma á sunnudegi til að vera klár fyrir afhendinguna. Nei nei þá hringja þeir og segja vegna veikinda er því miður ekki hægt að koma. Ég freeeeekar pissed off því það er farið að grynnka á nærfata og sokkabirgðum mínum allverulega. Jæja næ að væla út tíma 2 dögum seinna þrátt fyrir það ætti að taka 5 daga.
Nú í dag er þvottavélin loks komin á réttan stað en það mætir bara einn maður til að koma henni á sinn stað. Ég var búin að segja þeim að það væru nokkrar tröppur og líklega erfitt fyrir einn mann. Skv einhverjum reglum megum við Elín Ása ekki hjálpa og því fór þvottavélin mín tilbaka. Líklegast þarf ég að bíða í 5 daga enn!

Nú er ég virkilega að hugsa hvort ég eigi að kyngja á honum stóra mínum og viðurkenna að ég sé fullorðin og fara og fjárfesta í eitt stk þvottavél.

laugardagur, júní 16, 2007

Takk kærlega fyrir allar afmæliskveðjurnar! Ég er nú bara upp með mér hvað margir mundu eftir mér.

Það var þvílík dagskrá meðan Amma, Birna og skvísurnar voru hérna. Fyrsta daginn var farið niður á Nyhavn í þvílíku sólskini og farið í bátsferð. Annan daginn héldum við allar í dýragarðinn og enn og aftur var þvílíkt gott veður. Seinna um kvöldið bauð ég svo í mat hérna heima hjá mér. Á mánudeginum fórum við í Bakken og fórum við oft í hvert tæki. Tæki og rauðvín kvöldið áður fara ekki sérlega vel saman. En Heklu fannst ekkert smá gaman. Það kvöld kom Hekla og gisti hérna heima, og horfðum við á DVD og dekruðum við okkur. Á þriðjudeginum fórum við í Tívolí og enn og aftur fórum við í fullt af tækjum. Um kveldið fórum við út að borða á Le Basilic í alveg 3-4 rétta máltíð með velvöldu víni með hverjum rétt. Namminamm! Á miðvikudeginum var rölt um bæinn og tjillað nett en einnig var farið út að borða á einn alversta veitingastað Kaupmannahafnar... mæli ekki með Jensen Böfhus. Síðan kvaddi ég þessa góðu heimsókn og hélt svo á frábæra tónleika með Tori Amos.

Síðustu dagar hafa svo farið í að ná sér eftir annasama viku. Nú er fríið búið og vinnan heldur áfram. úff púff

miðvikudagur, júní 13, 2007

Afmææææliiiii

Ég á ammæli í dag, ég á ammæli í daaaag hún á ammæli hún Hrebbnaaaaa. Ég á ammæli í dag.

Víííííí

mánudagur, júní 11, 2007

Stuð stuð stuð

Í gærkveldi hélt ég fyrsta matarboðið af mörgum hér í þessari höll sem ég bý í nú. Amma, Birna, Hekla, Heiður, Hildur, Svava, Helga og HC og auðvitað Elín mættu í þessa veislu. Sátum og borðuðum úti vegna þess veðrið var algert æði. Ég held að mannskapurinn hafi nú bara skemmt sér mjög vel og allir hafi farið saddir og sælir heim.

Í gær fór ég með túristunum í dýragarðinn og í dag er ætlunin að fara á Dyrehavns Bakken. Ég og Hekla erum búnar að ákveða að fara í ÖLL tækin!

föstudagur, júní 08, 2007

Heimsóknir

Í kvöld koma Amma Doja, Birna, Hekla og Heiður. Ég hlakka ekkert smá til en vegna vinnu næ ég ekki að sjá þær fyrr en í fyrramálið. Fyrsta matarboðið í þessari íbúð verður haldið á sunnudag en þá ætla ég að bjóða ferðalöngunum í mat. Nú er bara spurning hvað maður á að elda... Það væri líklega sniðugast að grilla eitthvað gott þar sem veðrið er uppá sitt allra besta þessa dagana. Svo verður farið út að borða á veitingastaðinn minn á þriðjudag. Auðvitað er skylda að kíkja niður á Nyhavn, fara í Tívolí og á Bakken, fara í eins og einn kanaltur, labba Strikið og allt þetta týpíska sem maður gerir með túristum.

Jæja best að fara að drífa sig út í møntvask þar sem þvottavélin okkar er ekki komin.