fimmtudagur, september 18, 2003

first a rettunni svo a rongunni

Bjóðið Sólveigu velkomna í bloggheima

Annað að frétta af mér Lex flytur út í næstu viku!! Ég er mjög hamingjusöm og sé fram á notalegheit við að búa hérna. Annars er ég nú alltaf í skólanum en sjaldan heima en þegar maður kemur heim eftir langan dag þá vill maður ekkert vesen.

Fékk nett áfall í morgun þegar ég fattaði að litli bróðir er að verða tvítugur... er svona langt síðan ég varð tvítug??

Já og svo er ég orðin háð grænu tei. Drekk það í öll mál heitt, kalt whatever. Massíft gott.

þriðjudagur, september 16, 2003

Ég held hún sé að flytja!

Jæja það var sambýlingafundur í gærkvöldi og allir sögðu það sem þau þurftu að segja. Ég held að hlutirnir batni en Lex gat ekki séð að það væri neitt að. Val og ég vorum að reyna að útskýra fyrir henni að hún byggi ekki hérna ein og hún yrði að taka tillit til allra. En neiii hún var ekki að sjá það. En þá sögðum við ef hlutirnir breyttust ekki þá yrðu það ekki við sem flyttum. Hún rauk þá til og sagði að hún yrði farin fyrir mánaðarmót og fór svo eitthvert. En hringdi stuttu seinna í Val og bað hana að flytja inn í herbergið mitt. Val vill það ekki því, hún flutti í þessa íbúð til að hafa eigið herbergi og vera laus við vesen.

æ allavega ætla ég að bíða og sjá hvernig þetta allt fer.

mánudagur, september 15, 2003

Geisp!
Sit a bokasafninu ad bida eftir ad Jon se buinn i tima thannig eg komist heim og i matvorubud. Helvitis gaeran er buin ad eta allt! Ja svona thid sem vissud ekki tha er ekki alveg gott samband milli allra medleigjenda. Sko thad hofust rifrildi yfir thvi ad eg skyldi fara i sturtu og tannbursta mig hey ok eg vidurkenni klukkan var margt en vid komum bara fra Orlando svo seint, hvad atti eg ad gera? Mig langadi ekki serstaklega ad sofa skitug, sveitt og otannburstud. Ja thetta er sko Lex en Valerie er aedi. Valerie er lika buin ad fa sig fullsadda a henni. Ok medleigendafundur verdur haldinn um leid og allir eru heima a sama tima!
Aetludum ad hafa hann i gaerkvoldi en svo hringdi Val sem hafdi farid heim til foreldra sina um helgina, og sagdi ad hun kaemi ekki fyrr en seint thannig.... kannski verdur etta i kveld.
Ef gaeran batnar ekki verdur hun ad flytja. Vid vorum ad gera henni greida med ad leyfa henni ad bua med okkur.

sunnudagur, september 14, 2003

Komin með netið heima!!

Loksins komið í gang. Hallelúja og amen (ég er nebblilega svo trúuð hóst hóst)

Fór á Amerískan fótboltaleik í Orlando í gær milli skólans míns og skóla systur Jons. Mergjað gaman... og það er ekkert smá lagt í þetta. Í hvert skipti sem heimliðið (UCF) skoraði var skotið af fallbyssu, engin smá læti. Áður en leikurinn byrjaði var bílastæðið fullt af fólki að grilla og drekka bjór massíft partý. Leikurinn sjálfur var svo spennandi að fólk átti ekki til orð. Bæði liðin skiptust á að vera yfir og svo í lokin var liðið mitt (FAU) næstum komnir að touchdown línu en þá var tíminn búinn þannig UCF vann.

Oh ég er bara svo hamingjusöm núna að vera komin í samband við umheiminn. Sé ykkur á MSN.

fimmtudagur, september 11, 2003

Jaeja typiskt

ALgerlega typiskt fyrir Hrebbnu!! Internet gaurinn kom i gaer og setti allt upp og thetta atti allt saman ad virka eftir ca 2 tima. Eg kem heim 5 timum eftir thetta atti ad virka og neibbs virkar ekki. Sukkar feitast! hringi i fyrirtaekid og eg er latin lesa numerid a modeminu 20 sinnum og hun alltaf nei thetta er ekki numerid endadi med thvi eg var nu ordin svolitid pirrud thvi thetta var eina fokking numerid a draslinu. Svo eftir 15 min af thessu thrasi kemur o fyrirgefdu eg gleymdi ad baeta vid tveimur nullum hja mer.
Jaeja buin ad vera ad tala vid thessa belju i halftima (hun virtist ekki hafa hugmynd um hvad hun var ad gera) En allavega tha fekk eg bilad modem thannig their geta ekki komid og skipt um thad fyrr en a sunnudag.

O well thid thurfid ad bida adeins lengur eftir internet sjuklingnum Hrebbnu. Aumingja thid!

'Eg er enn ad deyja eftir sidustu aefingu a thridjudag en shit thad a ad vera erfid aefing i kvold... kannski eg akved bara ad gerast vatnsburdarmadur og myndatokuserfraedingur lidsins.

Endilega latid i ykkur heyra folk!

sunnudagur, september 07, 2003

Enn a lifi!!

Hae allir,
Eg er enn a lifi, tho taept hafi thad nu verid i sidustu viku. Skodid thetta ansi magnad og svo onnur utgafa her . Aumingja Jon er a haekjum og er buinn ad fa nokkrar sprautur og fullt af lyfjum ut af konguloarbitinu. Vegna meidsla hans hef eg fengid ad keyra um a bilnum hans eins og mig lystir.

Enn annad... Eg fae netid heima hja mer a midvikudag. Sem thydir fleiri blogg og frettabref og allt tha med islenskum stofum.

Eg er i nokkud nettum timum: Mannfraedi, saga Maya, Azteka og Olmeca, (fyndna vid thad er ad professorinn heitir DR. Iceland. Sidan hofum vid Sogu Forn Grikkja (eina sagan sem mer hefur nokkurn timan thott skemmtileg), Svo er thad Felagsfraedi, fjolskyldan og samfelagid (bara skemmtilegir timar) Eg er einnig i Econometrics sem er hagfraedi og likindareikningur (verd ad taka thennan kurs vegna rannsokna eda eitthvad) og svo ad lokum er eg i fyrsta ars ensku (sko fyrsti radgjafinn minn sagdi ad eg thyrfti ekki ad taka thetta thannig eg er buin med alla ensku sem tharf nema fyrsta kursinn, og madur a ekki ad mega ad taka hina nema madur se buinn med thennan).
Onnin leggst mjog vel i mig og nu er eg ad taka thetta fostum tokum. Fer snemma a morgnanna i skolann og laeri a bokasafninu, fer i tima og er yfirleitt ekki komin heim til min fyrr en um 17 -18.

Audda er eg komin a fullt i rugbyid aftur. Vid erum komnar med nyjan thjalfara og gvud hann er erfidur. Fyrsta aefingin eftir sumarid var 3 klukkatima hlaupaaefing.... eg helt eg myndi drepast. En svo var bjor eftir aefingu. Og o ja eg er nu varaformadur rugbyfelagsins.

mánudagur, ágúst 25, 2003

Halloooooo fra Florida

Halloooooo fra Florida


Jaeja eg er komin i solina herna a Florida. Bara fint sko, ibudin er aedi! For i tvo tima i dag... .ensku og mannfraedi. Buin ad koma mer fyrir svona naestum thvi alveg... thurfum ad fa okkur sofa, faum kannski einn fra felaga minum.

Afi kom i heimsokn i dag og sagdi ad thetta vaeri nu mun skarra en heimavistin. Eg er nu alveg sammala. mjog dugleg labbadi i skolann i dag sem eru ca 2-3 km... ok mjoooog heitt en etta tok bara ca 30 min i dag... labbadi um daginn og var tha ad flyta mer og tha tok etta 20 min.... sko i dag akvad eg ad profa adra leid sem reyndist muuuun lengri. A laugardag flatmagadi eg a strondinni i Miami allan daginn bara nett. Svo for eg og hitti hluta af rugby lidinu i gaer. I dag hefur madur verid ad hitta fullt af folki a labbinu i skolanum.

Thegar eg er komin med netid heima kem eg til med ad nota islenska stafi.... woooohooo!

Jaeja nu er eg ad bida thvi eg fae far heim.... vei vei vei.

þriðjudagur, ágúst 05, 2003

Ég er að fara út eftir 14 daga....vei vei vei

Bara búin að vera að vinna....

Stórslasaði mig alveg um helgina... braut mitt fyrsta bein. Vildi ég væri hörkutól og hefði brotið eitthvað svona sem sést en ekki stóru tánna og varla muna hvernig ég fór að þessu. Sat á slysó í maaaarga tíma (aumingja HrebbnA) sko hélt kannski að eitthvað meira væri að en neiiiii þú braust tánna þú getur fengið táspelku til að hjálpa þér að ganga eða bara þú teipar etta sjálf og ert í stífum skóm. Valdi hið síðara því það kostaði ekkert en bara að fara á slysó kostaði mig rúmar fimmþúsund krónur. ETTA er RÁN!!

Ótrúleg heppni fylgir mér.... búin að brenna mig, skera mig, brjóta mig, og fleira í vinnunni....best að fara að hætta.

Ömurleg verslunarmannahelgi.... ég slasa mig edrú í vinnunni en ekki full í eyjum.

miðvikudagur, júlí 23, 2003

Vei vei vei

jæja lítið búin að skrifa undanfarið bæti úr því á næstu dögum.

mánudagur, júlí 07, 2003

5 dagar!!!!

Fór í bíó í gær á Charlies Angels massa skemmtileg afþreying. Er núna á leiðinni á kaffihús með Rannveigu. OG svo er það vinna í nótt oj oj oj oj ...ég ekki nenna. O well best að drulla sér út úr húsi. Djöfull ég hef ákkúrat ekkert til að blogga um. hehe

fimmtudagur, júlí 03, 2003

miðvikudagur, júlí 02, 2003

Frííííí

Vúhú ég er í fríi á morgun....

ætla sko aldeilis að dúlla við mig á morgun. Ræktin, litun & plokkun, lita á mér hárið og svona næserí.

Bara 11 dagar þangað til kanarnir mínir koma!

Ok ég var að vinna með ákveðnum þjóni í kvöld... hann reyndi að selja kúnnum ákveðinn mat...þau afþökkuðu, hann bauð þeim aftur sama matinn... þau vildu ekki þetta drasl, ok ok ok hann tekur pöntunina.. frábært hann misskildi eitthvað þannig þau fengu vitlausan mat, þessu var reddað... buðum þeim bara upp á matinn, þau panta te... hann meira en lítið utan við sig og setur ískalt vatn í teketilinn, ok ok ok fólkinu fannst þetta nú bara vera orðið fyndið...er annað hægt?? Við redduðum öllu að lokum... sem betur fer!! En aðeins of mörg mistök fyrir minn smekk.

Jæja best að fara að hátta... góða nótt.

mánudagur, júní 30, 2003

Hann lendir á Fróninu

Þá er allt komið á hreint með flug og slíkt hjá Jon og Sarah systur hans.

Þau fara í loftið 11. júlí og lending er hérna 12. júlí klukkan 6.25 um morguninn. Síðan fara þau tilbaka 22. júlí.

Loksins búin á næturvöktunum þarf ekkert að mæta í heila viku á óguðlegum tíma í vinnuna.... bjór og sígó með Kötlu og Sigrúnu í kvöld.... ætli ég kunni að fara á kaffihús lengur?? Nei í alvöru ég manneskjan sem fór á kaffihús 3-4 sinnum á dag hefur eiginlega ekkert farið síðan ég kom heim frá Florida. Nett skrítið. Ég held meira að segja að bróðir minn sé búinn að fara oftar en ég.

Búin að sofa í allann dag eftir vinnu sko þannig maður verður í nettum fíling í kvöld.

sunnudagur, júní 29, 2003

Jæja langt síðan ég hef skrifað!

Ég er búin að vera vinna eins og vitleysingur. Búin að vera að elda, þjóna og þrífa herbergi.... massa gaman.

Kíkti til Marínar í kveðjupartý en var bara stutt því ég þurfti að fara að vinna klukkið 4 í nótt. Woohoo ég er búin á morgunvöktum á morgun svo eru það kvöldvaktir í vikunni, nema náttúrulega bæði morgun og kvöldvaktir næstu helgi. Verð sko að safna... en ég held ég fái samt frí á miðvikudag.... hlakka massa til að sofa út og vera bara að dúllast. Svo er saumó á miðvikudagskvöld, maður fær þá slúðrið í æð. hehe

Kallinn minn kemur 11. júlí váá hvað ég hlakka til. Það er massíf dagskrá plönuð... hitta þetta og hitt fólk og skoða þetta og hitt. Tek alveg við uppástungum um hvað verður að sýna þeim (systir ætlar líka að koma.)

úúú mig langar á kaffihús og fá mér bjór!!

útborgunardagur í næstu viku!!

föstudagur, júní 20, 2003

Settið komið heim

Já já svaf svona pínu yfir mig í morgun þegar ég átti að vera að sækja þau. Týpískt en pabbi hringdi nú þegar þau voru rétt lent og þá var ég nú lögð af stað og tilkynnti honum að ég væri aðeins sein þannig þau settust bara og fengu sér drykk og sígó... þannig ég þurfti að bíða eftir þeim.

Annað kvöld verður stórfamilían í grillveislu hérna í Kópavoginum... svona vegna þess að allir eru komnir aftur til landsins, ég frá Florida, Dabbi frá Kýpur, settið frá USA og Birna og co frá Noreg. Þannig ég fæ að fara í barbie með Heklu á morgun ásamt að leika aðeins við Tvistana sem ég hef nú ekki séð síðan um jólin... nú eru þeir víst algerir skæruliðar hlaupandi út um allt.

Fór í vinnuna í kvöld... það hafði ekki verið rassgat að gera allann daginn og um leið og ég kom fylltist allt. Það er betra þá er tíminn fljótari að líða. Og hið ótrúlegasta gerðist ég fékk tip frá Þjóðverjum sem gerist bara aldrei.
Og ég komst að því ég er betri í þýsku en ég er í frönsku þrátt fyrir að hafa lært frönsku í menntaskóla. Veeerí Vííírd

miðvikudagur, júní 18, 2003

Ok þrjú djömm á 4 dögum

föstudagurinn 13. júní
halda upp á þessi fjölmörgu ár mín.... hrunið ærlega í það.
Enduðum tvær á djamminu ég og Elín Ása úff boðar aldrei gott þegar við tvær eru þær einu eftir. Við getum allavega sagt að hvorugar okkar man eftir öllu kvöldinu.

Laugardagurinn 14. júní
Ok eftir kvöldið áður var deginum eytt ýmist skjálfandi upp í sófa í móki eða ælandi fyrir framan hvítu skálina. Oj oj ætlaði sko ekki að djamma neitt. Jæja crewið kom í heimsókn og við erum að tala um að mér var fleygt inn í sturtuna og látin fara í djammföt og mála mig. Síðan var settur bjór fyrir framan mig og mér gert skilt að drekka hann. ok þetta tókst svona næstum því. Ok ég var svona aðeins að byrja að finna á mér eftir bjór, blush og freyðivín en samt var ég enn að deyja úr þynnku. Fínt í bænum en samt erfitt.

Sunnudagurinn 15. júní
Æði ég vaknaði og engin þynnka... bara eyddi deginum í að þvo þvott og slík skemmtilegheit.

Mánudagurinn 16. júní
Ok ég ætlaði ekki að gera bofs en svo kom Katla og var alveg á því að við ættum að djamma. Jájá þetta er hluti af afmælisgjöfinni þinni. Hva getur maður sagt annad en Ok? þannig í djammgallann einu sinni enn og síðan haldið heim til Kötlu. Elduðum svka fínan indverskan mat... ok ég brenndi Nan brauðin aðeins en vá splittar ekki diff. Síðan voru það drykkirnir rauðvín með matnum, síðan bjór og síðan G&T. Ok gítarinn var spilaður af kappi og sungið hástöfum með.
Síðan var haldið á ball með Jagúar shit hvað var gaman þar. En þeir hættu frekar snemma að spila þá var audda farið á barinn okkar.... Celtic Cross. Jæja haldið heim til Kötlu að sofa eftir að búið var að loka þar. Með smááá stopp í vöffluvagninum.

Þriðjudagurinn 17. júní
Ok vaknað heima hjá Kötlu við lætin í hallargarðinum og ilminn af pönnukökum að bakast mmm yndislegt að vakna óþunnur eftir svona heljarinnar djamm og fá pönnukökur frá Kötlu sem var nota bene í þjóðbúning. Síðan fór ég bara heim og horfði á imbann og þvoði þvott.

Settið kemur heim í fyrramálið þannig maður þarf að vakna fyrir allar aldir að sækja þau en það er allt í lagi ég er vön.

föstudagur, júní 13, 2003

Ég á afmæli í dag

Úff 22 ára mér finnst það soldið mikið.... sérstaklega því mér finnst svo stutt síðan:
ég var á leikskóla
síðan ég byrjaði í 6 ára bekk
maður lék sér í barbie (ok kemur ennþá fyrir þegar Hekla kemur í bæinn)
fékk gat á hausinn í leikfimi í breiðó þegar ég var 7 ára
flutti út til Florida í fyrsta skipti
flutti út til Florida í annað skipti
kom aftur heim og byrjaði aftur í Breiðó
byrjaði í réttó
fermdist
fór á Halló Akureyri (fyrsta útihátíðin)
var í unglinga"vinnunni"
lét keyra á mig
útskrifaðist úr Réttó
byrjaði í MR
hætti í MR
byrjaði í Mk
útskrifaðist úr MK
Vann í nokkra mánuði á fullt af stöðum
flutti til Florida í þriðja skipti

uh ok kannski er etta ekkert svo gamalt en samt það er hægt að deila 11 í ess tölu!!!
En í kvöld mun ég drekkja sorgum mínum í bjór og fagna því að ég sé til.

Takk Amma Doja, Mamma og Pabbi, Katla, Sólveig, Kristín Erla, Gyða, Anna Lára, Íris, Dabbi bróðir, Tinna, Eva Rut, Elín Ása og allir hinir sem mundu að ég ætti afmæli... nú líður mér eins og ég sé vinsæl hehehe.

þriðjudagur, júní 10, 2003

eru þetta nokkuð einkenni sem þið kannist við ??



Ég hef á seinni árum verið plöguð af alvarlegum sjúkdómi sem
nýlega hefur fundist greining á, en engin lækning við, enn sem komið
er. Eftirfarandi er lýsing á dæmigerðum degi þegar einkennin blossa
upp : Ég ákvað einn daginn að þvo bílinn og hélt áleiðis að
bílskúrnum, en tók þá eftir að bréf höfðu borist inn um lúguna. Ég tók
bréfin og ákvað að fara í gegnum póstinn áður en ég færi að þvo bílinn. Sorteraði póstinn og
ákvað að henda ruslpóstinum en tók þá eftir að ruslafatan var orðin
full og lagði því reikningana sem höfðu borist, frá mér á eldhúsborðið
og ætlaði út með ruslið, en ákvað þá að fara og borga þessa reikninga,
fyrst ég yrði við bílinn hvort eð er. Fór inn í herbergi til þess að
ná í veskið og bíllyklana en sá þá ný e-mail í tölvunni og ákvað að
svara þeim strax svo ég gleymdi því ekki. Ákvað að ná mér í kaffibolla
fyrst. Á leið inn í eldhús tók ég eftir því að blómið í borðstofunni
var orðið heldur þurrt. Hellti nýlöguðu kaffi í bolla og ákvað að
vökva blómið áður en lengra væri haldið. Náði í blómakönnuna og ætlaði
að fylla hana með vatni þegar ég tók eftir því að fjarstýringin af
sjónvarpinu lá á eldhúsborðinu. Ákvað að fara með hana á sinn stað í
sjónvarpsherberginu fyrst, svo ég fyndi hana örugglega um kvöldið
þegar ég settist fyrir framan sjónvarpið að horfa á uppáhaldsþáttinn
"Sex in the City". Á leið í sjónvarpsholið rakst ég á handklæði sem ég
ætlaði að setja í þvottavélina sem beið full af þvotti. Fór þangað og
setti í vélina en fann þá gleraugun sem ég hafði verið að leita að
fyrr um morguninn. Lagði fjarstýringuna frá mér í þvottahúsinu og fór
með gleraugun inn í svefnherbergi þar sem ég ætlaði örugglega að finna
þau þegar ég færi í rúmið að lesa uppáhaldsbókina mína......ef ég finn
hana. Stoppaði í svefnherberginu þar sem dagurinn hófst og mundi ekki
lengur hvað ég ætlaði upphaflega að fara að gera !!! Í lok dags hafði
ég því hvorki þvegið bílinn né borgað reikningana, ekki vökvað blómin
eða þvegið þvottinn, ekki farið út með ruslið, heldur ekki svarað
e-mailunum
og
var auk þess búinn að týna fjarstýringunni, bíllyklunum og veskinu og
kaffið beið kalt á eldhúsborðinu. Ég skildi ekkert í þessu því ég
hafði verið á fullu allan daginn í ýmsum snúningum. Ég hef nú
uppgötvað að þetta er alvarlegt vandamál sem ég ætla að leita mér
hjálpar við. Þessi sjúkdómur kallast á fagmáli AAADD eða "Age
Activated Attention Deficit Disorder",
á
íslensku "Aldurstengdur athyglisbrestur".

fimmtudagur, júní 05, 2003

Hvernig stendur á því.....

Ok vaknaði klukkan 3 í nótt og var mætt í vinnuna fyrir 4!! Ég sem hef nú alltaf verið talin eiga erfitt með að vakna og þykja einstaklega gott að sofa gat þetta nó problemó! OK verð að viðurkenna sofnaði aðeins þegar ég var búin að vinna og nú er ég á flippi...græjurnar í botni með hárbustann sem míkrófón og dansa af innlifun.... Búin að hlusta á vinsæla smelli eins og LIKE A VIRGIN, STUCK IN THE MIDDLE WITH YOU, RANGUR MAÐUR, lagið úr Brother where art thou og svo smá Black Metal og einnig nokkuð um Old School Hip hop.

Sko þetta er bjútíið við að vera einn heima....

Akkuru á ég tvö pör af bleikum sokkum?? Ég manneskjan sem fyrirlítur allt sem er bleikt.

Bölv dagsins hlýtur: Ákveðinn nýr framkvæmdastjóri fyrrverandi vinnustaðar míns! Við segjum honum að blíb blííííb "$#"¨!$#&(=)$&% og hana nú!

þriðjudagur, júní 03, 2003

Bara æði að vera ein heima....

Katla er nú eiginlega flutt inn.... en sofnar alltaf í LazyBoy stólnum og það er mjöööög erfitt að vekja hana. En búin að vera dugleg að elda og svona massa gaman að vera komin með eldhús verð ég að segja. Tilraunast með ýmislegt og svona. Samt að spæla að kaupa eitthvað tilbúið í kveld eða elda svona frosna pítsu. Ok ég held ég sé búin að sjá allar myndir á videóleigunni.... grenjaði eins og vitleysingur yfir einni vælumyndinni í gær. hehehe