mánudagur, október 20, 2003

Úff helgin búin

Gæti skrifað slatta en nenni því ekki ákkúrat núna... skrifa fullt á morgun ég lofa.

fimmtudagur, október 16, 2003

Geisp!

Það verða allir að heyra lagið sem heitir Seven Nation Army með White Stripes... ég elska þetta lag og spila það grimmt. En það verður að hlusta á það mjög hátt til að fá rétta fílinginn.

Svo var ég einnig að uppgötva nýjan leik... eða ok þetta er Gameboy emmulator, sem sagt GameBoy á PC tölvunni. Gvuð minn almáttugur ég er húkt. Jon og ég erum búin að vera að keppa við hvort annað eins og vitleysingar.

Í gærkvöldi fór ég á Íþróttaráðsfund, já ég er í því, hehehehehe og síðan í Salsa partý á vegum skólans sem vinkona mín skipulagði. Ok ég er vond ég var í þessu partýi í ekki meira en 5 mínútur. Mjög fyndið eftir fundinn settist helmingurinn af liðinu niður úti og kveikti sér í sígó.

Ég fékk félaga minn sem er í nemendaráðinu að redda mér lista yfir alla íslendingana í skólanum, maður þarf að hafa eitthvað leyfi en ef maður þekkir rétta fólkið getur maður fengið hlutina gerða eins og skot án þess að fylla út svo sem eitt eyðublað. Ég þoli ekki þetta skriffinnskuveldi sem er hérna í USA. Það tekur fokking mánuð að fá stimpil á blað.

Jæja best að koma sér í skólann. (oh verð ég???)

miðvikudagur, október 15, 2003

Til hamingju með tvítugsafmælið elsku besti bróðir minn

nohh litli bróðir bara orðinn tvítugur!

Lítið búið að vera að gerast fór á æfingu í gærkvöldi... hélt ég myndi drepast. síðan er bara búið að vera að lesa eins og vitleysingur. Hugmyndin fyrir helgina er að fara á Fright Nights og svo grillveislu Íslendingafélagsins. Ég átti að fara til Gainesville um helgina á rugbymót en það var hætt við það.

Svo er ég að vinna að verkefni sem rannsakar hvort hjónabönd hafi jafna verkaskiptingu og hvernig þau líti á verkaskiptinguna. Mjög skemmtilegt. Síðan þarf hópurinn minn að flytja þetta fyrir bekknum sem síðan gefur okkur einkunnir, Síðan gefum við hvor öðru einkunnir sem byggjast á samvinnunni.

Ég er farin að þrá alvöru heimilismat. Það hefur tíðkast hér á heimili að vera að borða á hlaupum þannig næstum alltaf þá er það pasta úr pakka en ég er samt búin að læra að gera það aðeins betra. Mig langar í hollann, góðan mömmumat. Kannski ég geri tilraun um helgina að elda eitthvað slíkt.

sunnudagur, október 12, 2003

HAHAHAHAHA

Pælið í fyndnu ég var að kenna efnafræði. Sem sagt ein stelpa úr liðinu og Ben (sem var í sama herbergi og Jon síðustu önn) eru í efnafræðikúrs sem ég tók síðustu önn. Og þau voru bæði að eypa úr stressi og báðu mig um að fara yfir efnið með þeim. Sem ég gerði. Og þau virtust skilja miklu meira. Mér finnst þetta massíft fyndið þar sem ég er nú ekki þekkt fyrir að vera neitt sérstaklega sleip í raunvísindum. En mér hefur yfirleitt gengið vel í efnafræði... veit ekki afhverju.

Í gær var grillveisla á ströndinni með International fólkinu og rugbyliðinu...´rosalega gaman. Spiluðum rugby á ströndinni og svo volleyball í sjónum (shit hvað það er erfitt). Síðan í gærkvöldi var Carlos vinur okkar einn heima þannig eitthvað af fólki mætti heim til hans að spila og svona. Carlos er í hljómsveitinni með Jon þannig þeir fóru að spila eitthvað þegar fáir voru eftir og þeir létu mig og einn vin þeirra sem kallaður er Kaffi (Coffee) spila á blokkflautu, bassa og synthezieser (hvernig sem það er skrifað) hehe Ógeðslega skrítið/fyndið.... þetta var eins og djössuð útgáfa af SigurRós. Ok ok þetta var þvílíkur hávaði en við hverju er að búast þegar fólk er á eyrunum??

Núna er ég enn einu sinni að bíða eftir að kapalgaurinn komi að laga netið mitt. Þetta er ansi pirrandi en ég fékk heilan mánuð frían út af þessu.

Dagskráin í dag: Læra hagfræði síðan horfa á Matrix Reloaded einhverntíman og svo líklega bíó í kveld að sjá Kill BIll.

föstudagur, október 10, 2003

Halllllóóóó og gleðilega helgi.

Val átti afmæli í gær og í tilefni af því var mér boðið í mat til frænda hennar og kærasta hans. Þeir eru svona steríótýpan (Birdcage) af gay hjónum. Þetta var massíft gaman... en úff svoldið mikið hvítvín... ég er með léttvínsdrykkjuþynnkuhausverk núna. Þeir eru voðalega hrifnir af Íslandi þó þeir hafi aldrei komið þangað en það er vegna þess hve samkynhneigðir hafa verið fljótir að fá almenn réttindi. Til dæmis fyrst til að lögleiða giftingu og allt hitt.


Kvöldið áður skruppum við Jon, og herbergisfélagar hans að horfa á einn vin okkar syngja í karókí. Mjööög fyndið.

Humm já svo fékk ég allt í einu e-mail frá Íslendingafélaginu hérna. Þau eru með grillveislu næstu helgi... ef ég verð í bænum ætla ég að fara.

Á morgun er grillveisla á ströndinni með rugby liðinu og Alþjóðaklúbbnum. Það verður örugglega skemmtilegt.

Tölvan mín er voðalega góð núna.... Jon reformattaði hana

Jæja farin upp í sófa... oh hann er svoooo þægilegur, einn af þessum þú veist þú sest og vilt ekki standa upp aftur.

miðvikudagur, október 08, 2003

VEi Vei vei

Í gær keyptum við sófa! Þvílíkur munur..... liggja upp í sófa og kúra og horfa á sjónvarpið. Annars tók all verulega á að koma honum hingað. Í fyrsta lagi mættum við 3 stelpur að sækja hann í búðina (thrift stores rokka feitast) og þá var spurt Hvar eru strákarnir.... við náttúrulega ekki alveg sáttar við þessa spurningu, tókum massann á etta og upp í pallbíl vinkonu Val. Ok þetta er ansi stór sófi og ég bý á annarri hæð (engin lyfta). Og það er frekar þröngur stigi og gangur. Jæja við komumst loksins upp stigann og komnar að hurðinni okkar og þá koma nágrannarnir að hjálpa, nokkrir milli tvítugs og þrítugs sem búa í næstu íbúð.... ok ég bara spyr þeir hljóta að hafa heyrt í okkur fyrr. Humpf allavega komumst við loks á leiðarenda.

Eftirköst ég get ekki lyft handleggjunum og mér er massíft illt í bakinu.

Massíft mikið að gera í skólanum.... Um helgina þarf ég að hitta einn hóp í félagsfræði og annan í hagfræði og það á að læra allt það sem við kunnum ekki. Vinnuhópar taka jafnmikinn ef ekki meiri tíma en að fara í sjálfa tímana. En gerir allt auðveldara. Svo í þokkabót nóg að gera í rugbyinu...en ég fór ekki á æfingu í kvöld því ég þarf að læra of mikið.

Jæja ég minni á að það er vel liðið að fá e-mail!!!

sunnudagur, október 05, 2003

Prófið gekk vel held ég.... hversu góð er ég í brjálaðri stærðfræði án þess svo mikið sem mega að líta á reiknivél.
Annars voru drukknir nokkrir bjórar og svona bara nett tjill yfir sjónvarpinu. Jú og ég kíkti á rugbyleik.

Svo bjó ég til hillusamstæðu....á vísu eftir að mála hana.
Svo bjó ég einnig til 3 myndaramma úr pappakassa og akrýlmálningu.
Jon og Val vilja meina að ég sé hrikalega hugmyndarík en þetta kallast sjálfsbjargarviðleitni.

Hefði getað farið á Radiohead og Supergrass tónleika en það nennti enginn með mér í gær.... pældu í fólki!!! Þeim fannst Radiohead leiðinleg hljómsveit og vissu ekki einu sinni hvað Supergrass var!!! Jon hefði farið með mér því hann fílar Radiohead en hann þurfti að vinna......AAAARG!

Í dag fórum ég og Val í búð hjálpræðishersins en þar fann ég geðveikt flottann kokteilhristara á $3 þannig ég keypti hann. Sáum þar sófa en okkur var bent á að kíkja fyrst í aðra svona notaða búð og þannig ég ætla að fara þangað í vikunni. Ég fór einnig í dýrustu verslunarmiðstöð á Florida að finna afmælisgjafir handa Dabba bró, Kötlu og Val (hinum herbergisfélaganum) la la la la la

Oh ég nenni EKKI að læra.... komin með smá svona ógeð. Búin að læra yfir mig síðustu vikurnar.

laugardagur, október 04, 2003

Klukkið er núna 6.49 á laugardegi og ég er búin að vera vakandi í 49 mínútur.... hvað er að??? Ég er að fara í eitthvað ljótt próf.

fimmtudagur, október 02, 2003

Veiii Hrebbna vera dugleg

Jæja fyrst ég kemst ekki á æfingu í kvöld ákvað ég að labba heim úr skólanum í stað þess að reyna að fá far (Jon var farinn í vinnuna). Að þessu sinni var freeeekar heitt úti og rushhour í þokkabót (enginn stoppar þá á gangbrautum... meira að segja þó grænikallinn er) Og næst ætla ég að muna eftir ferðageislaspilaranum.

Góðar fréttir: Lex er að flytja... hún fer líklega á morgun!! ÉG er mjög hamingjusöm... kannski ég fagni þessu og fæ mér bara einn bjór. mmmm ahhhh fyrsti sopinn alltaf góður.

Komst að því mér finnst sojamjólk eiginlega betri en venjuleg mjólk. Maður lærir ýmislegt á því að búa með grænmetisætu. Hún er að reyna að fá mig til að borða tofú, en sko alltaf þegar ég hef smakkað það hefur það verið vibbi. En aftur á móti hefur það verið á stöðum sem ekki eru þekktir almennt fyrir góðan mat....mötuneyti FAU þ.e.a.s. MMM bakað eggaldin með raspi og kryddi er svooooo gott.

Keypti ógeðslega sniðugt ískaffimix (sem er ekki óhollt og með tonn af sykri, allt sem ég hef séð hefur verið baaaara sykur) maður hellir upp á kaffi og setur svona útí og svo klaka og nammi nammi namm.

Ég held það sé greinilegt að ég er svöng... best að fara að finna eitthvað til að næra sig á.
GEISP!

Jon baud mer ut ad borda i morgunmat i morgun... nammi namm. En kaffid er ekki ad virka thar sem eg er ad geispa golunni herna. Passid ykkur eg er ad klara surefnid.

miðvikudagur, október 01, 2003

Zulu

Að zulua er hefð sem er tekin eftir fyrsta leik oftast (þó margir geri þetta almennt á stórmótum) Þá strippar maður fallega á barnum (rugby strákar eru með mjööööög flotta líkama) og svo hleypur maður hring í kringum staðinn nakinn. Að þessu var barinn á ströndinni þannig þeir hlupu um ströndina naktir við mikinn fögnuð viðstaddra. Sá mjög mikið af þessu í Savannah þegar ég var á móti þar í vetur/vor.

Fyrsta skipti sem maður skorar mark (sem er mjööög erfitt) Þá verður maður að drekka fyrsta bjórinn úr takkaskónum sem maður spilaði í.....Viðbjóður! Síðan drekka allir úr skónum þ.e.a.s. allt liðið.

Sem betur fer er liðið mitt ekki mjög hart á þessum hefðum. Okkar skilyrði við fyrsta mark að þú verður að drekka all slatta um kvöldið. Yfirleitt nokkur staup líka.

Ég hef einnig heyrt að sum lið fyrir norðan láta alla nýliða spila heilan æfingaleik nakið. Úff og ég læt ekki einu sinni sjá mig á bikíni.

Enn einn þáttur í sápuóperu Hrebbnu!
Töluðum við Lex í dag og báðum hana um að fara sem fyrst. Þetta gengi ekki lengur. Að meirihluti íbúa sé hræddur við að koma heim til sín vegna hinna íbúanna virkar engan veginn. Hún fór náttúrulega að öskra og svona og segja að við værum ekkert skárri sambýlingar en samt gat ekki gefið nein rök.

Síðan er ég kom heim af æfingu var hún svaka kammó og fór að reyna að tala við mig og eitthvað spyrja mig af hverju og ég sagði henni öll atriðin sem ég fíla ekki og hún skildi ekki af hverju. OK ég er að læra stíft undir próf og hún fer að öskra á mig út af einhverju sem ég veit ekki einu sinni.... hún skildi ekki af hverju mér fannst það óþægilegt. Svo sagði hún að hún er búin að vera í vondu skapi út af öðru en ekki út af því að búa hér..... ok bíddu bíddu af hverju erum við þá hræddar við hana?
Bara allskonar.... rugl. Ef hún finnur engan stað til að fara á ok þá verður hún hérna í tvær-þrjár vikur í viðbót. Þó ég sé nú engan veginn að meika það. Svo segir hún að hún eigi enga vini lengur.... já veistu út af því að þú ert búin að vera svo hrikalega vond og leiðinleg við ALLA. Samt er hún alltaf með einhverju liði. ÉG er ekki að skilja alveg.

Allavega að öðru.... ég hélt mér hefði gengið alveg ömurlega á tveimur prófum í síðustu viku því ég var drulluveik daginn fyrir og daginn sem ég tók þau... hélt ég hefði ekki lært nóg (heililnn var ekki að fúnkera þá) En það kom bara langt fyrir ofan meðaltal í þeim báðum. Fékk fínar einkunnir. Hrebbna vera sátt!

Jæja ég ætla að fara að læra ööö öllu heldur fara í sturtu fyrst...smá blautt á æfingu.

Ráð Dagsins

ekki kaupa sólgleraugu....því þá hættir ekki að rigna. Ég keypti mér sólgleraugu á laugardag því ég sá ekkert og mínútan sem ég setti þau á mig rigndi og það hefur ekki hætt síðan... nema smá stund þegar ég gleymdi þeim í bílnum. AUDDA!

mánudagur, september 29, 2003

Helgin buin .... snokt snokt

Rugbymot helgarinnar..... erfidis vinna. I fyrsta leik var svoooo heitt og bjart ad vid vorum ad kafna (enda eg solbrennd thratt fyrir solarvorn) adur en naesti leikur hofst kom svona lika hellidemba ad thad bokstaflega var eins og foss en bara yfir ollu. Thegar naesti leikur hofst var solin komin aftur i ollu sinu veldi nema hva nuna var thetta eins og mudwrestling thvi allt var vibbablautt. En an djoks er skemmtilegra ad spila i rigningu og ogedi. Einhvern veginn meiri filingur.

Annars fekk Hrebbna ser nokkra ollara a laugardaginn i gigantisku rugbyparty a strondinni. Massift gaman... Frir bjor. Karlmenn ad zulu-a, folk ad drekka ur takkaskom og fl fl fl. En thetta eru allt rugbyhefdir.... ef einhver vill vita hvad ad zulu-a er postid tha comment.

Annars er eg ad drepast ur hardsperrum. Eg get varla hreyft mig og svo i thokkabot med nokkra vel svarta marbletti asamt skemmtilegum blodrum a tam. Bara smaaaaa rigning thegar vid vorum ad spila. Eg er enn ad hreinsa drulluna ur eyrunum. En VAAAAA thad var svooo gaman.

föstudagur, september 26, 2003

Oh looooksins vikan buin!!

Buin ad vera mjog long og strong vika. Eg er svo fegin ad eg a bara eftir einn tima i skolanum thessa vikuna. Svo tharf eg ad vakna klukkan 5 i nott thvi eg tharf ad vera komin i skolann klukkan 6 thvi vid thurfum ad keyra a motid sem er i Cocoa Beach (rett hja Orlando). Fyrsti leikurinn okkar er sko klukkan 10.30. thetta er 3-4 tima keyrsla thannig thetta er taept. Geisp eg sef bara a leidinni.


Oh mig langadi svooo ad fa mer nokkra bjora. O well

fimmtudagur, september 25, 2003

Note to self... alltaf að athuga ef maður er með ofnæmi fyrir nýjum svitarlyktareyði. annars afleiðingar: helvíti!!

miðvikudagur, september 24, 2003

OJ OJ OJ

Ég þarf að gera þvílíkt mikið í dag og þá verð ég náttúrulega veik. Sko búin að vera slöpp í nokkra daga en svo dagurinn í dag búinn að vera ógeðslegur... ég fór í skólann settist til að lesa á bókasafninu en úps.... ælupest. Svo eins týpískt og allt er þá verður etta örugglega farið á morgun. Jon er líka eitthvað slappur þannig þetta er örugglega eitthvað sem er að ganga.
Þegar ég vaknaði í morgun leið mér eins og ég væri viðbjóðslega þunn (svona alvöru Hrebbnu þynnka) þó ég hafi ekki svo mikið sem snert áfengi síðan á föstudag. O well ce la vie.
Allir að senda mér e-mail, comment og fl til að láta mér batna. hehehe

AEfingar i hita ekki snidugar

Hæ hæ,
Var að koma af æfingu. Við erum að keppa á móti í Cocoa Beach um helgina þannig það er verið að fara yfir ALLT massa vinna. Það er alltaf verið að breyta í hvaða stöðu ég á að vera og núna er ég barasta orðin rugluð... ég held ég sé komin í stöðuna sem ég var í upphaflega. Smá valdabarátta innan rugbyliðsins sem er ekki að gera góða hluti. Við byrjuðum að spila með nokkrum stelpum frá Ft. Lauderdale og núna er ekki einu sinni á hreinu í hvaða búningum við spilum á laugardag. Já já svo voru hinar gellurnar að fara fram á að stelpurnar keyptu stuttbuxur og fl merktar þeirra liði.... ég og Vero sögðum nei nei þið þurfið ekki að kaupa neitt. Bara ef þið eigið stuttbuxur verið í þeim og helst bláar.
Þetta eru fátækir námsmenn og þetta FT.Lauderdale fólk er ekki að fatta það.

Annars er ég að drepast úr ofnæmi en samt hef ég ekkert verið heima hjá Jon, ég held það sé grasið á vellinum þar sem við æfum. Sökkar feitast.

Oj oj oj ég er að borða kvöldmat og klukkið er hálf ellefu! Og það súpa úr dós sem er ekkert sérstaklega góð. Oh vorkenniði ekki mér?

Annars eru nokkrir klukkutímar eftir af heimaþrældóm þannig best að halda áfram.

þriðjudagur, september 23, 2003

Dollarinn að lækka vúhú!!! Þýðir að Hrebbna getur eytt meiri pening!

mánudagur, september 22, 2003

Það er æðislegt að lesa svörin við emailinu sem ég sendi í gær. Djöfull þekkiði mig öll vel!
Haaaallllooooo!

Er i skolanum thannig no Icelandic letters now. Eg var ad fa nyjan bil....eda svona nokkurn veginn. Jon var ad kaupa ser nyjan bil (2000 arg. Ford Focus hinn billinn drapst) og fyndid thad segja allir billinn okkar meira ad segja mamma hans. :)

For ut ad borda um helgina med fullt af folki, djo thad var svoo gaman vid drukkum natturulega nokkra bjora og svona skemmtilegheit. Sidan eftir matinn var farid i bilastaedahusid i skolanum og graejurnar ur gamla bilnum hans Jons rifnar ut. Ok ad horfa a nokkra straka rifa liggur vid heilan bil i sundur og setja hann aftur saman a 15 min er magnad. Eg var latin tala vid logguna sem helt vid vaerum ad gera eitthvad af okkur. En thegar eg var buin ad utskyra sagdi hann bara passid ykkur bara. Ekki malid.

Nyjasta nytt hja Lex: hun neitar ad borga sinn skerf i simreikningnum!! AAAARG! En vid aetlum ad draga thad fra tryggingunni sem hun borgadi upphaflega. :) Fyrrverandi kaerasti hennar skilur mig svoooo fullkomlega ad geta ekki buid med henni. Hann hlo nu bara thegar hann heyrdi ad hun vard pissed yfir ad eg skyldi voga mer ad tannbursta mig. OK hun tharf ad gera ser grein fyrir ad heimurinn snyst ekki um hennar auma rassgat!

Eg og Val eldudum vodalega godan mat i gaer og horfdum svo a video... svaka stud.

En FOLK LATID I YKKUR HEYRA!!!!

föstudagur, september 19, 2003

Halloooo

Hæ aftur... hey já þessi byrjaði einnig að blogga í gær/dag!

Fór á æfingu áðan... það var sér þjálfari að kenna okkur að fara í Scrum. Massa nett að vita loksins hvernig á að gera hlutina rétt. Við gátum ýtt (á scrumsleða) 4 fullorðnum (tveir stórir karlmenn og tvær meðalstórar stelpur) og vorum bara tvær! Sem þýðir að við erum að beita okkur rétt. Það er mót á laugardag eftir viku og ég er orðin svoldið stressuð.

Í Econometrics í dag þá fórum við nokkrar að ræða saman og ég komst að því að ég er ekki sú eina sem er ekki að skilja þetta 100% þannig við ætlum að búa til studygroup. Gvuð nú er ég komin í 2 studygroup, rugbyliðið, og fl fl fl.... hef ég tíma til að sofa?

Nei annars finn ég þvílíkan mun á mér að vera byrjuð að æfa aftur, maður er einhvern veginn skýrari í kollinum. (Segi ég og sýp á bjórnum mínum)

Svo er ég að laga myndaalbúmin!! vei vei vei. Og um helgina mun ég fá lánaða digital myndavél og ætla að taka myndir af íbúðinni minni og fleiru. vúhúhú