föstudagur, júní 28, 2002

Hefuru tekið eftir að þegar maður fer í bankann þá eru gjaldkerarnir í flestum tilvikum með gervineglur?
Good news.... bréfið er loksins komið. Þannig núna get ég farið að skipuleggja og sendast milli stofnanna. Nú er reality sjokkið komið búin að sjá svart á hvítu að ég er að fara út. Vííí...

Annars var sóða hádegi kfc sá um matinn... á föstudögum tökum við okkur breik frá hinu vanalega brauð með osti og fáum okkur junkfood. Barasta kominn föstudagur enn einu sinni.... en gaman.
Ok hætt við að vera væmin, bjartsýn og í viðbjóðslega góðu skapi.......lá við að ég myndi berja sjálfa mig.
I had a near death experience.....ég drukknaði næstum því í gær. Ok ég ýki, ég sofnaði í baði...en ég hefði alveg getað drukknað. Geðveikt óþægilegt að vakna....öll krumpuð og ótrúlega kalt.

Í dag ætla ég að vera svona yfirmáta bjartsýn og í viðbjóðslega góðu skapi. Helst að syngja allt sem ég segi. Ó já líka vera væmin. Hvað ætli ég verði barin oft í dag?

fimmtudagur, júní 27, 2002

Nei veistu ég veit ekki nákvæman dag hvenær ég fer út.... nei ég veit ekki hvar ég mun búa.....nei enn og aftur ég veit ekki hvenær nákvæmlega ég fer út...... bara svona þannig fólk hætti að spyrja mig. Skólinn byrjar að kenna 22.ágúst og ég þarf að vera komin út þó nokkru áður.

Geisp....sybbin í dag. Jæja farin heim að slá garðinn....vei!
Ef einhver vill leiga íbúð með mér í Boca Raton í Florida vinsamlegast hafa samband.....




you're girl, interrupted. you're fun and friendly, and just a little bit crazy.

take the which prettie movie are you? quiz, a product of the slinkstercool community.


Ég er sem sagt soldið geðsjúk.......
Úps var að taka eftir allt það gamla sem ég hafði skrifað er týnt....frú Stella vesken mín er horvin.

Mig langar ekki að vinna eins og geðsjúklingur í júlí.....en búin að ráða mig í hina vinnuna. Ok vinna á skrifstofunni frá 8 til 16, að skúra frá 16 til 21, og allar helgar á kaffihúsinu. Ég á mér ekkert líf. OG svo allur aukatími fer í að pakka og soleiðis.....

Síðasta partýið sem ég held í bili verður Grímuball 6.júlí..... svona kveðju-afmæli-sumar-upplyftingar-gera-eittthvað-öðruvísi-partý!
Shit! Svaf yfir mig í morgun.....líkaminn vaknaður en ekki rest. Ekkert smá óþægilegt að hendast svona framúr rúminu. Oh! mig sem var að dreyma svo vel.
Annars fékk ég svona ó mæ gad ég er að fara að flytja sjokk í gær. Var að hjálpa Kötlu beib að flytja í íbúðina og þá einhvern veginn búmm.... rétt þá gerði ég mér grein fyrir því að ég er að fara til lands langt langt í burtu í mörg ár. Þegar ég kem heim þá verða allir vinir mínir komnir í eigin íbúðir, með fjölskyldu og barasta komin í pakkann. Þegar ég kom heim í gærkvöldi fékk ég smá svona kvíðakast og var búin að ákveða að hætta við að fara.... skipti aftur um skoðun....og síðan aftur....og enn aftur. Ég fer það er engin spurning. En fáranlegt Katla flytur heim og þá nota ég sömu kassa til að pakka mínu dóti niður og Sigrún kemur örugglega sama dag og ég fer út. Hvað er eiginlega að fólki gat það ekki flutt til útlanda á sama tíma og ég! Ekki vera að flytja heim núna.

Ég held að gamla settið bíði bara eftir að bróðir minn útskrifist núna....´henda honum út, selja húsið, kaupa litla íbúð og vera að ferðast og spila golf allann ársins hring.

miðvikudagur, júní 26, 2002

Vei einungis 24 DAGAR sem sagt 194 klukkutímar þangað til ég hætti!!!
Póstþjónunsta í heiminum er fáranleg! Ég er að bíða eftir bréfi sem fór frá Florida 11. eða 12. júní í dag er 26. júní og bréfið er ekki enn komið. Snailmail er rétta orðið. Að vísu grunar mig þar sem það hefur skeð svoooo oft áður að bréfið hafi farið til Írlands fyrst....úps nóu wreng lend beck tú Æslend! Hvað er fólk í póstþjónustu að spæla eiginlega. Les a já þetta byrjar á A sendum það bara til Ástralíu þótt það eigi að fara til Aszerbadsjan...enginn munur þar á.

Svo þarf maður að fara að skúra, skrúbba og bóna áður en settið kemur heim... ég skil þetta ekki ég er eiginlega ekkert búin að vera heima og Dabbi ekki heldur en samt safnast ógeðslega mikið drasl. Tók nú samt smá húsmæðrarispu í gær. Mér finnst samt ógeðslega leiðinlegt að laga til. Svo var ég að fá nýja aukavinnu við að þrífa ég veit ekki hvað er að mér. Ég er með ofnæmi fyrir að skúra og soleiðis og er að fara að vinna við þetta. Ekki alveg í lagi! Þetta eru bara nokkurhundruð ferkílómetrar sem ég þarf að skúra á hverjum degi.
En þetta er bara í nokkrar vikur..... söfnunarátak Hrebbnu 2002..... ekki eiga sér líf bara vinna eins og mófó.
Hvernig háskólatýpa ertu? Ok ég er virkilega klofinn persónuleiki í öllum prófum sem ég tek..... í þessu er ég Viðskiptafræðinemi, læknanemi og tölvunörd! Please help me find my identity....
Veiiii komin í vinnuna.
Auglýsingin eftir vinum virkaði... Katla var svo góð að svara kallinu. Það var alveg sko kerlingaþemi í botn... Sex in the City, Ally Mcbeal og Grease. Audda drukkið Latte með.... ég hef ekki tölu á hvað ég drakk marga í gær... Svo seinna var það sko snakkið, súkkulaði og kók. Audda fórum við að greina vinkonur okkar sem persónur í sjónvarpsefninu okkar.... Katla er Rizzo, Sigrún er Sandy, Sólveig er Marty og ég well ég er lúðinn Jan í Pink Ladies sem er alltaf að gera sig að fífli.
Um helgina er planið að fara í innanbæjarmarka útileigu.... allaleið inn í Heiðmörk. Það verður örugglega mjög gaman eins og alltaf þegar Díonýsus kemur saman. Grill, áfengi og útivera....einkennishlutir Díonýsusar.

þriðjudagur, júní 25, 2002

Ok eins gott mér líður betur því ég myndi ekki meika annan dag eins og í dag..... ég er meira að segja búin að baka brauð!!!
Ok búin að horfa á nokkrar myndir...lesa moggann....reyna að sofa... lesa meir.... það er vibbalega leiðinlegt að vera veik. Ég hér með lýsi eftir vinum!
Það er ekkert gaman að vera veik!!!!!!!!

mánudagur, júní 24, 2002

Ef einhver kann að laga helvítis dálkinn á síðunni sem færðist til..... plís hafa samband!!!
See what Care Bear you are.
Ógislega sætt
Mjöööööög erfið helgi liðin!
Á föstudag var ég frekar róleg kíkt í smá grillveislu hjá Þránni. Strákarnir fullir....audda! Fór snemma heim og sofnaði í sófanum. Vaknaði eldsnemma....miðað við að það væri laugardagur....sko klukkan 10. Fór svo og opnaði kaffihúsið.....ekkert að gera allann fokkings daginn. Ég held að samtals hafi komið inn 5 manneskjur. Sá eftir því að hafa ekki djammað með strákunum.

Laugardagskvöld:
Fór heim til Þráins. Ein með strákunum....again! Tjill stemming þar þangað til.......við fórum í FUBAR. Úúúú minns er fuglur. Strákarnir orðnir vel marineraðir líka. Eva er svo góð og kemur og gerist einkabílstjórinn okkar. Fórum að vísu ekki í bæinn fyrr en mjög seint. Það var náttúrulega farið á ARA og teigaðir nokkrir grjónagrautar og bjór og enn fleiri staup. Rölt af stað.... hjá Húsinu hitti maður fullt af liði. Veit iggi akkuru en við fórum á glaumbar....ógislegur staður en það var bara allt í læ þetta kvöld. Svo fer hálfvitinn í rugl.is að taka einhver viðtöl við liðið. Það á að banna myndvélar og videótökur á djamminu.

Ok ótrúlegur vinahópur..... ég hafði á tilfinninguna að allir væru að reyna við alla. Þetta var eiginlega komin í hálfgerðan hring....... þessi er að reyna við þennan en hann vill vinkonu hennar sem vill besta vininn. Hehe. Fúsi og ég vorum eitthvað að djóka....held ég. Svo hitti minns Betu hún er barasta heví nice. Allavega svo var lokað og þá var ákveðið að fara heim til mín eftir að hafa sitið eins og rónar hjá listasafninu. Gudjó ákvað að rónast eitthvað aðeins lengur en sagðist ætla að hitta okkur á eftir. Við pöntum pítsu og förum heim. Gudjó misskildi eitthvað því hann fór heim til Þráins í árbæ en Hrebbna á heima í Kópavogi. Massa fyndið.....halloooo halloooo einhver heima.......

Bróðir minn er allt í einu vaknaður, gvuuuð hann er að mæta í vinnuna. hehehe. Ógislega fyndið Gudjó er líka að vinna hjá Egils og fer eitthvað að skipuleggja daginn fyrir hann.... hann var ekki beint í ástandi til þess. Fúsi frekar þreyttur og það var gerð íkveikjutilraun á nefinu á honum.
Shit ég á að mæta í vinnuna á eftir...... jæja allir fara að sofa.....við vorum fimm. Við erum fjögur fyrst í risastóra nýja rúminu mínu.... massa pláss...án djóks. Strákunum fannst mjöööög fyndið að leyfa mér ekki að fara að sofa. Náði að lokum að loka augunum því fimm mínútum seinna var komin tími til að fara á fætur. Gerði mig klára í vinnuna. Hefndi mín svo á svefnleysinu..... tók pott og pottlok og bang bang bang! hehe fyndinn svipur á þeim. Ok dreif liðið á fætur og allir í morgunmat á Prestó. Súkkulaðikaka og malt.

Mér fannst ekki sniðugt að vera að vinna þegar fólk fór nú að koma inn.... góðan daginn, hvað má bjóða þér. Svona frekar rólegt fyrri part en svo um leið og þynnkan fór að koma kom fólk. Ég ein að vinna.... algerlega á haus! Strákarnir koma aftur en í þetta sinn til að fá sér bjór.....afsökunin var að það tók því eiginlega ekki að verða þunnur. Þannig rónarnir mínir juku viðskiptin hjá mér allverulega. Erfiðum vinnudegi lokið.....ég hélt ég myndi deyja. Heim að elda handa litla bró....settið ákvað að yfirgefa okkur í nokkra daga. Síðan var það videó, þynnku-fylleríið hjá Þránni. Ekki alveg að meika þetta. Þeir á sneplunum búnir að vera fullir nokkurnveginn síðan á föstudag. Þegar ég var farin að sjá rúmið mitt í hyllingum þá ákvað ég að fara heim. DJö...ljúft að sofa.

föstudagur, júní 21, 2002

Ok ef maður er í vinnunni þá getur maður ekki eytt pening.....nema að kaupa eitthvað á netinu (sem ég geri yfirleitt ekki). Ef ég myndi bara byrja að vinna 23/7 (einn klukkutími til að sofa) þá myndi ég ekki eyða neinu bara safna. Þá yrði debetkortið mitt ánægt og ég líka þegar ég fer að borga skólagjöldin, leiguna, bækur, flug, pappírar og allt hitt! Mér finnst þetta mjög sniðug hugmynd hjá mér. Nú er bara enn og aftur að finna vinnuna. Humm er ekki hægt að fá borgað fyrir svefn??? Einhverjar svefnmælingar eða eitthvað? BJórsmakkari hljómar vel. Nú þar sem vændi til framfærslu er eiginlega löglegt kannski ég fari bara út í það. Nehhh..... Hvað með símavændi ú ha já já aaaaaaa! Er ég ekki efnileg?? Kannski ég spyrji bara Önnu pönnu hvernig þetta er....hún prófaði einhvern tíman en sagði að vísu að þetta væri hrikalega leiðinlegt.

Ég hefði ekkert á móti því að fá borgað fyrir að prófa golfvelli....
Góða helgi farin að brjóta lögin fyrir bróður minn.... hann er bara 19 má ekki kaupa bjór nanananana.
Víí´föstudagur....flöskudagur (bara ekki hjá mér)
Búin að vera geðveikt dugleg í vinnunni.... ganga frá svona ýmsu smáatriðum áður en ég hætti...tíhíhí ég veit langt þangað til. Þannig þegar nær dregur starfslokum þá get ég haft það náðugt verið að skreppa í löns og erindast hingað og þangað. Ekkert stress.