laugardagur, apríl 26, 2003

Sundsmokkar
Ég verð að segja hér svolitla sögu sem mér skilst að sé sönn og hafi átt
sér stað fyrir fáum vikum í stórum kaupstað á Norðurlandi. Svo bar til að
maður nokkur kom að bílalúgu. Stúlkan sem var þar við afgreiðslu spyr hvað
megi gera fyrir hann. "Áttu sundsmokka?" segir maðurinn. Hún jánkar því,
fer og leitar, en finnur ekki neina sérstaka sundsmokka, spyr starfssystur
sína, sem er ekki viss, en bendir henni á að taka bara smokkakassann og
láta manninn velja, hann þekki þetta sjálfsagt betur. Stúlkan tekur
smokkakassann, opnar lúguna og réttir manninum og spyr hann hvort vilji
eitthvað af þessu. "Hvað ertu að meina? spyr maðurinn forviða. "Nú, varstu
ekki að spyrja um sundsmokka?" segir stúlkan. "Ég var að biðja um
Sunnudagsmoggann!" sagði maðurinn þá. Stundum tala Íslendingar of
hratt...


Eg a vid thetta vandamal ad strida.....thad er ad segja ad tala of hratt!

Engin ummæli: