föstudagur, nóvember 15, 2002

Eg vard ad posta etta....


Á þessu herrans ári 2002 eru löglega taldir sem fullorðnir
einstaklingar á Íslandi allir þeir sem fæddust árið 1984. Þegar þau
fæddust kunnir þú að skrifa, lesa, leggja saman, draga frá og hluta
af margföldunartöflunni.

Þau muna sama og ekkert eftir Reagan
tímabilinu og fréttu aldrei af því þegar reynt var að drepa hann.
Þau muna heldur ekki eftir leiðtogafundinum sem haldinn var í Höfða
og vita fátt um Gorbatsjoff. Þau voru ekki kynþroska þegar
Persaflóastríðið hófst. Fyrir þeim hefur sami páfinn verið í
vatikaninu síðan þau fæddust. Þau sungu
aldrei "we are the world, we are the children".
Þau voru 8 ára þegar
Sovétríkin féllu. Þau muna fátt eftir kalda stríðinu og síður eftir
austur- og vestur Þýskalandi, þó svo að þau hafi heyrt af þeim í
sögutímum.

Þau eru of ung til þess að muna eftir því þegar Challenger
geimflaugin sprakk og munu sennilega aldrei vita hvað
Pepsi-áskorunin var. Fyrir þeim hefur AIDS verið til alla ævi. Þau
léku sér aldrei með ATARI tölvuleiki, geisladiskurinn kom á
markaðinn þegar þau voru ekki orðin eins árs, þau hafa aldrei átt
plötuspilara og hafa sennilega aldrei leikið sér með pac-man.. þegar
talað er um BETA vídeóspólur hafa þau
ekki
hugmynd.

Star-Wars og Súperman finnast þeim frekar slappar myndir og
tæknibrellurnar
ömurlegar. Mörg þeirra hafa ekki hugmynd um að einu sinni var ekkert
til
nema ríkissjónvarpið sem fór í frí á fimmtudögum og í júlí. Þau muna
heldur
ekki eftir því þegar rás 2 var eina rásin í útvarpinu fyrir utan rás
1, og sú eina sem spilaði annað en klassíska tónlist. Þau hafa áræðanlega
aldrei hlustað á útvarpssögur
eða lög unga fólksins eða óskalög sjúklinga og sjómanna, og Bessi
Bjarnason hefur aldrei verið yngri. Fá hafa séð svart-hvítt sjónvarp
og þeim finnst fáránlegt að þurfa að hækka og lækka og skipta um
stöð án þess að hafa fjarstýringu. Þau fæddust 3 árum eftir að Sony
hóf sölu á vasadiskóum og fyrir þeim hafa hjólaskautar alltaf verið
línuskautar.

Þeim hefur alltaf
þótt farsímar og PC tölvur vera óskaplega eðlilegir hlutir, ekkert nýtt.
Þau hafa ólíklega séð Húsið á sléttunni, Þórð húsvörð í Stundinni
okkar og Einu sinni var. Þau hugsa aldrei um "Jaws" þegar þau fara í
sjóinn, Michael Jackson hefur alltaf verið hvítur...og hvernig er
mögulegt að John Travolta hafi einhverntíman dansað, svona feitur
maður! Olavia Newton-John? HVER??!! Þeim finnst lítið fyndið að
vitna í Með allt á hreinu, Nýtt líf og Stellu í orlofi. Þau muna
ekki hverjir Þorgeir Ástvaldsson, Geiri Sæm
og Herbert Guðmundsson eru. Nafnið Hemmi Gunn segir heldur ekki
margt. Madonna hefur alltaf verið fræg og nöfn eins og Duran Duran,
Wham, Culture club, Thompson twins, Tears for Fears, Rickshaw, Limahl,Terence
Trent D´arby, Talking heads og Modern Talking hljóma ekki
kunnuglega.

Þau muna ekki eftir BMX hjóla tímabilinu og break-dance tímabilinu. Þau
hafa ekki hugmynd um hvað Millet úlpur og Don kano voru merkileg fyrirbæri.
Þau vita sennilega ekki að strætó var einusinni grænn og að tíkallar
og fimmtíukallar voru seðlar. Þau hafa aldrei keypt fimmaurakúlur og
muna ekkert eftir því að hafa notað aura. Þau vita ekki hvað
Karnabær var og hafa aldrei séð Tommaborgara sem merkilegt
fyrirbæri. Þau voru smákrakkar þegar við dönsuðum á Broadway eða
Vilta tryllta Villa. Þau hafa alltaf getað pantað mat heim og alltaf verið vön tilveru
kreditkorta. Munið kæru vinir að þetta folk er unga fólkið í dag.
Merki þess að þú ert farin/n að eldast:

1. Þegar þú lest þennan texta og brosir.
2. þegar þú stundar íþróttir og lætur alla vita með miklu stolti.
3. þegar þú geymir bækur, vatnsglas og vaselín á náttborðinu.
4. þegar fyllerí og kelerí eru ekki lengur umræðuefni.
5. þegar börn tala við þig eins og þú talaðir við "fullorðna fólkið" fyrir stuttu.
6. þegar "fullorðna fólkið" talar við þig eins og jafnaldra.
7. þegar þú þarft meira hálfan dag til þess að jafna þig eftir vökunótt.
8. Þegar vinir þínir eru allir giftir.
9. Þegar litla frændfólkið þitt er farið að sníkja sígarettur eða áfengi.
10.þegar litla frændfólkið þitt veit meira um tölvur en þú. 11.þegar
þú getur farið á ströndina og eytt helium degi án þess að fara í sjóinn.
12.Þegar þú stundar líkamsrækt í fötum sem fela líkamann í stað þess
að sýna hann.
13.Þegar þú vilt frekar hitta vini þína í stað þess að kjafta klukkutímum saman í símann.
14.Þegar þú veist hvað þú vilt.
15.þegar þér líst betur á rauðvínskvöld en partý.
16.þegar þú horfir á fréttir og Kastljós og hefur virkilega áhuga.
17.þegar þú lest Moggann í heilu lagi og hefur skoðun á næstum öllu.
18.þegar þú ert aldrei spurð/ur um skilríki
19.þegar þú og vinir þínir eruð farin að finna grá hár.
20.þegar þú ákveður að senda þetta bréf til vina sem hafa áræðanlega gaman af því.


Engin ummæli: