Ég segi örugglega alltaf þegar ég verð massa þunn að ég ætli að hætta að drekka..... en samt svo kemur helgi og þá er sama rútínan. Annars var saumódjamm í gær.... yfirleitt hef ég nú ekki fílað þannig djömm en það var barasta allt í læ í þetta skiptið. Heví fyndið þegar ég og Gyða fórum á Vínbarinn og við slógum í gegn hjá fólki á fimmtugsaldri.... gvuuuuð þú gætir verið dóttir mín..... já og gætir verið orðin amma og það fyrir mörgum árum síðan. Þú hefðir átt að sjá svipinn þegar maður svaraði þessu... eitthvað ó mæ god mér finnst ég vera svo ung-svipur. Síðan voru allir að ráðleggja okkur varðandi framtíðina. Annars var farið snemma heim var ekki að meika mikið meira. Strigaskó dæmið mitt er alveg að virka flaug ekkert á hausinn á föstudag né í gær. Ok kannski ekki alveg í stíl við outfittið samt alveg close enough. Bara þægilegt.
Jæja nú er ég enn einu sinni farin að vorkenna sjálfri mér í þynnkunni....leiter!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli